Af því að veðrið er svona leiðinlegt ætlum við hjá Skrapp og gaman að vera ofurskemmtileg og bjóða collection pakkana í nýjustu línunum frá Basic Grey; Origins og Sugar Rush, á 20% afslætti. Collection pakkningin inniheldur heildarlínuna (18 pappírsarkir með munstri báðum megin), límmiðaörk með helling af flottum límmiðum sem bjóða upp á óteljandi möguleika og stóra örk af límmiðastöfum. Er ekki rigningin bara strax orðin örlítið bærilegri?